Monday, December 17, 2012

Sumarfrí

Núna er ég komin í þriggja mánaða sumarfrí og það er ekkert smá skrítið að það sé desember! Ég trúi því varla að það sé bara vika í jólin. Það er orðið mjög heitt hérna og það eru alveg ótrúlega margar tegundir af skordýrum! Eins og þeir sem þekkja mig vita að ég er ekkert of hrifin af pöddum en ég er orðin mjög góð í að veiða allskonar bjöllur og þannig. Ég ætla aldrei að kvarta aftur yfir skordýrum á Íslandi!

Ég tók hóp próf í bókmenntum  á spænsku og við máttum hafa bókin með í prófinu. Hópurinn minn var tekinn fyrir svindl og við vorum allar reknar út úr prófinu og fengum 1 í einkunn. Ég held að ég hefði ekki fengið mikið hærri einkunn ef ég hefði gert prófið sjálf :D Þannig að ég var komin með falleinkunn í faginu og ég frétti seinna að kennarinn hefði viljað að ég tæki endurtökupróf úr öllu árinu. Af augljósum ástæðum held ég að það hefði ekki haft mikið upp á sig....
Síðasta daginn í skólanum grillaði bekkurinn minn hamborgara í hádeginu og einmitt þá byrjaði að hellirigna og við urðum öll alveg rennandiblaut. Það komu þrumur og eldingar og ein eldingin kom ekkert smá nálægt skólanum!



Síðasti dagurinn í skólanum
Ég fór með host-mömmu minni í skólann þar sem hún vinnur og talaði við einn bekk sem hún kennir. Ég gaf þeim Ópal að smakka og þeim fannst það öllum alveg ógeðslegt en það voru nokkrar hetjur sem létu sig hafa það að borða tvö stykki. Það var til sjónvarp í skólanum þannig að ég gat sýnt þeim DVD-disk með myndum frá Íslandi og þau voru sérstaklega hrifin af myndunum frá Geysi og Jökulsárlóni.

Síðustu helgi var útskriftarveisla hjá host-bróður mínum. Þetta var ekkert smá flott veisla og allt öðruvísi en útskriftarveislur á Íslandi. Allur árgangurinn heldur veislu saman í sal og fyrst settust fjölskyldurnar við sín borð og síðan löbbuðu stúdentarnir inn í salinn í pörum og það var sýnt á stórum skjám. Ég held að ég hafi aldrei borðað eins mikið á einu kvöldi! Síðan var hægt að fara inn í annan sal þar sem var dansað fram eftir nóttu og við fórum heim klukkan fimm um nóttina.
Salurinn þar sem veislan var haldin

Ég fór með nokkrum skiptinemum í bíó og það kom svo í ljós að myndin var á þýsku með spænskum texta. Ég skildi ekkert of mikið í myndinni en þetta var ekkert smá fyndið. Við vorum sjö sem fórum og bara ein af okkur skildi þýsku. Ég er búin að sjá bæði Mamma Gógó og Kóngavegur í sjónvarpinu hérna. Hvern hefði grunað að það væri verið að sýna myndir á íslensku með spænskum texta í sjónvarpinu í Argentínu!


Útilega með AFS
Um daginn varð rafmagnslaust upp úr klukkan fjögur og rafmagnið kom ekki aftur fyrr en morguninn eftir. Það var ný reynsla að þurfa rafmagnslukt til að geta farið í sturtu :)

Það kom mér skemmtilega á óvart þegar pósturinn bankaði upp á og ég fékk fjögur jólakort frá Íslandi. Þau voru í alveg ótrúlega góðu ástandi og litu alls ekki út fyrir að hafa ferðast yfir hálfan hnöttinn :D
-Guðbjörg Eva


Saturday, November 24, 2012

Þrír mánuðir

Ég er búin að vera hérna í Argentínu í þrjá mánuði og það hefur liði mjög hratt en samt finnst mér ég hafa verið ótrúlega lengi hérna. Ég tók fyrsta prófið mitt á spænsku í efnafræði og fékk 10! Efnafræðitímarnir í MR greinilega alveg að borga sig :) Ég get því miður ekki sagt að líffræði prófið hafi farið jafnvel en ég get ekki verið annað en sátt með að fá 5 svona miðað við skilninginn sem ég hafði á námsefninu :D Það eru samt tvö fög sem ég skil ekki ennþá hvaða fög eru og það er ekkert svo gaman að sitja tvöfalda tíma og skilja ekki neitt :/ Við erum alltaf í tvöföldum tímum og fáum tíu mínútna hlé á milli. Bekkurinn minn er í sautján fögum og er þess vegna  til dæmis bara með tvo tíma á viku í ensku.

Í síðustu viku varð rosalega heitt hérna og á fimmtudeginum fór hitinn upp í 38°C. Það er samt ennþá bara vor en þetta var víst óvenjulega mikill hiti. Í staðinn fyrir að vera í sundlaug þurfti ég að vera í tímum í skólanum og ég var alveg að stikna í skólabúningnum. Ég held að ég sé á góðri leið með að safna í bóndafar með þessum blessaða skólabúningi! Það hefur sem betur fer ekki verið jafnheitt síðan.


Ég fór með fjölskyldunni minni í ferð um síðustu helgi og við sáum meðal annars rosalega fallegt stöðuvatn. Córdoba er þekkt fyrir fjöllin sín og útsýnið var ótrúlega flott. Vegur sem við keyrðum eftir meðfram einu fjallinu var sá hlykkjóttasti sem ég hef séð! Við fórum líka í bæ sem heldur Októberfest og allur bærinn er í þýskum stíl.

Kiara, Abril og ég
Á sunnudaginn lagði ég mitt af mörkum fyrir samfélagið hérna með því að gerast sjálfboðaliði í könnun. Við þurftum að labba hús úr húsi til að spyrja hvort að það byggi einhver fatlaður þar til að finna hvað það eru margir fatlaðir í Villa Allende og við hvernig aðstæður þeir búa. Tveir elstu bekkirnir í skólanum mínu gátu tekið þátt og ég fór með vinkonu minni úr bekknum. Sem betur fer vorum við vorum heppnar með hverfið sem okkur var úthlutað. Mér gekk ágætlega með spurningarnar en það voru nokkur orð sem flæktust fyrir mér, enda eru orð eins og endurhæfing og sjúkratrygging ekki alveg orðaforðinn sem ég er búin að vera að nota. Við löbbuðum í fjóra tíma og það var sól næstum allan tímann. Það var víst aðeins of mikið fyrir mig því að einmitt þegar við vorum að klára hverfið okkar varð mér rosalega óglatt og fannst alveg eins og væri að líða yfir mig. Þannig að ég var sótt og missti af fría matnum sem var búið að lofa okkur fyrir að taka þátt :(

Síðan tók ég saman nokkra hluti sem ég hef tekið eftir að eru öðruvísi hérna en á Íslandi

·         Það hellingur af frídögum af allskonar ástæðum. Til dæmis hafa verið dagur kennarans, nemandans og vorsins síðan ég kom. Gaman að segja frá því að Argentína er það land sem hefur flesta frídaga í heiminum árið 2012. Svo spyr fólk mig af hverju ég hafi valið Argentínu :D

·         Langflest húsin eru girt af með girðingum og hliðum. Það eru samt fæstir með dyrabjöllur þannig að fólk klappar fyrir utan til að láta vita af sér.

·         Mjólkin og jógúrtið er selt í pokum en ekki fernum.

·         Það er eiginlega alltaf ævintýri að fara í strætó hérna. Strætóarnir eru rútubílar og þeir eru oftast troðfullir af fólki. Það er þess vegna oft erfitt að komast í gegnum þvöguna til þess að fara út. Bílstjórinn gefur líka til baka þegar maður borgar og mér finnst það alltaf jafn óþægilegt að sjá bílstjórann vera að einbeita sér meira að því að telja seðla en að keyra. Ég held að fólk sem fær innilokunarkennd og bílveiki ætti að forðast strætóana hérna!

·         Þegar rignir þá hellirignir og það koma þrumur og eldingar. Göturnar verða stundum alveg eins og ár.

·         Tunglið snýr öfugt þegar það er hálft!

Tuesday, October 23, 2012

AFS hittingur og fleira skemmtilegt

 Síðasta laugardag var AFS með hitting fyrir alla skiptinemana í Córdoba. Við erum fjögur sem búum á svipuðu svæði og við tókum strætó saman inn í borgina. Það var ótrúlega gaman að hitta hina krakkana. Það eru um 20 skiptinemar hérna í Córdoba frá mörgum ólíkum löndum.
Við gerðum allskonar verkefni og áttum að nefna skrítnar, góðar og slæmar aðstæður sem við hefðum lent í. Dæmi um slæmar aðstæður var að einn strákurinn hafði lent í því að bekkjarbróðir hans sýndi honum ör eftir byssukúlu sem hann var með í kálfanum. Það voru annars flestir sáttir með reynsluna hingað til. Það var mjög skrítið að tala aftur ensku eftir sjö vikur af því að reyna að tala og skilja spænsku.



Allir skiptinemarnir og sjálfboðaliðar
Skandinavísku stelpurnar
Á sunnudaginn var mæðradagurinn hérna í Argentínu. Stórfjölskyldan kom í hádegismat og það var auðvitað borðað ekta argentínskt asado (grillað nautakjöt) og empanadas. Maturinn hérna er svo góður að ég er farin að hafa áhyggjur af því hvernig ég verð í laginu þegar ég kem heim!

Helgina áður fór ég út að borða með krökkum úr bekknum mínum. Kvöldið byrjaði ekki alveg nógu vel hjá mér því að ég braut stólinn sem ég settist á! (Ég vona að hann hafi verið eitthvað tæpur áður en ég settist...) Ég slapp samt alveg ómeidd sem betur fer :D

Inni í  dómkirkjunni
Fyrir utan Patio Olmos
Á mánudaginn í síðustu viku var dagur tileinkaður listum í skólanum og það var engin kennsla. Það var hægt að velja um fullt af hlutum eins og að læra töfrabrögð, hiphop og spila á hljóðfæri. Ég valdi mér að læra einhvern dans. Það kom kennari sem kenndi okkur og síðan sýndu allir hóparnir atriði í lok dagsins.

Tilbúnar fyrir dans atriðið
Ég er mjög stolt af sjálfri mér að ég er búin að skrifa dagbók um hvern einasta dag hérna og er komin með 28 blaðsíður í Word :)
-Guðbjörg Eva

Wednesday, October 10, 2012

Daglegt líf í Argentínu

Síðan ég bloggaði síðast er ég búin að gera margt! Helstu fréttir úr skólanum eru að ég er búin að fá heimanám. Til dæmis hélt ég kynningu í enskutíma um menntun á Íslandi. Það fór samt mestur tími í að kennarinn væri að þýða hana yfir á spænsku fyrir krakkana í bekknum. Ég hefði haldið að enskutímarnir væru auðveldastir en þeir fara nánast allir fram á spænsku þannig að ég skil ekkert meira í þeim. Svo gerði ég lítið verkefni um sögu Íslands á spænsku og í næstu viku á ég að skrifa um ævi Eiríks Rauða. Mér finnst alveg magnað að kennarinn viti hver hann var! Síðan er ég orðin eins og alvöru argentínskur nemandi og er komin með frímiða í strætóinn :)

Blak er alveg ótrúlega vinsælt hérna og krakkarnir eru mjög oft að spila. Ég er búin að prófa að spila en ég sýndi nú enga sérstaka byrjendahæfileika. Ég prófaði líka að spila Pictionary á spænsku. Með góðri hjálp og orðabók til að skilja orðin sem ég átti að teikna gekk það alveg ágætlega hjá mér :)


Á föstudaginn fór ég í afmæli hjá stelpu í bekknum mínum. Það var búin að vera rosalega mikil rigning og eldingar þannig að þegar ég kom til hennar var allt rafmagnslaust. Sem betur fer kom rafmagnið aftur eftir smá stund. Við fórum síðan út að dansa um kvöldið og það varð aftur rafmagnslaust. Þegar við löbbuðum heim hafði rignt svo mikið að göturnar voru eins og ár! Það var svo algjört bíómynda móment þegar það kom bíll og keyrði á fullri ferð fram hjá okkur og gusaði vatni yfir nokkrar af stelpunum.Um nóttina gistum við átta stelpur á þremur dýnum!


Síðan ég bloggaði síðast fyrir tveimur vikum eru búnir að vera tveir frídagar í skólanum og einn dagur sem var ekki með neinni kennslu heldur bara skemmtidagskrá (mér finnst að MR ætti að hafa svona daga!). Á þessum degi kom í ljós að bekkurinn minn vann verðlaun fyrir besta dansatriðið fyrir atriðið sem ég skrifaði um í síðasta bloggi :D


-Guðbjörg Eva

17.júní fáninn :)

Ég og nokkrar af bekkjarsystrum mínum

Ótrúlega góð kaka sem ein af stelpunum gerði


Monday, September 24, 2012

Mánuður í Argentínu

Núna er ég búin að vera mánuð hérna í Argentínu og það er allt að byrja að venjast. Ég finn líka að ég er byrjuð að skilja aðeins meiri spænsku. Það er samt ennþá mjög erfitt að skilja þegar það eru margir að tala saman.

Á fimmtudaginn var sérstakur dagur í skólanum þannig að það var engin kennsla heldur bara skemmtidagskrá. Stofan hjá bekknum mínum var skreytt með Lísu í Undralandi þema. Bekkurinn minn var með dansatriði með dansi sem er vinsæll í Córdoba. Sem betur fer fékk ég góða kennslu hjá bekkjarfélögum mínum daginn áður :) Svo var ég spurð hvort ég vildi labba á einhverskonar tískusýningu fyrir framan allan skólann og ég ákvað að skella mér í það af því að þetta er nú í eina skiptið sem ég get tekið þátt í þessu.

Dansatriðið
Ég tók léttan snúning við endann á sýningarpallinum
Um kvöldið fór ég síðan út að dansa í fyrsta skiptið hérna í Argentínu. Það var alveg ótrúlega gaman og danskennslan frá því daginn áður kom sér mjög vel :D Svo gisti ég heima hjá vinkonu minni og við sváfum í svona tvo tíma áður en það var lagt af stað í gönguferð.Það var dagur vorsins þannig að það var frí í skólanum. Það fór stór hópur úr bekknum mínum og við gengum lengi til að komast inn í dal með fallegum fossi. Það var mjög heitt og ég var frekar þreytt en gangan var alveg þess virði.
Á leiðinni að fossinum
Allur hópurinn

Eitt skemmtilegt atvik sem ég lenti í: Um daginn var ég í verslunarmiðstöð og kannaðist eitthvað við lagið sem var verið að spila. Svo fattaði ég að þetta var lag með Sigurrós. Hversu mikil tilviljun að vera í búð í Argentínu og heyra íslenskt lag!
-Guðbjörg Eva

Friday, September 7, 2012

Skólinn

Núna er ég búin með fyrstu vikuna mína í skólanum. Ég er búin að vekja mikla athygli í skólanum fyrir að vera „ljóshærð“ og „hávaxin“. Skólinn hér er mjög ólíkur því sem ég þekki á Íslandi. Til dæmis eru um það bil 40 nemendur í bekknum mínum. Það eru líka svona þrír hundar sem búa í skólanum og þeir hafa meira að segja nöfn. Síðan finnst mér alltaf jafn skrítið að sjá þegar kennarar koma inn í stofuna og nemendurnir knúsa og kyssa þá.

Einn af hundunum í skólanum
 Ég skil nú voðalega lítið af því sem er verið að kenna í tímunum. Í dag náði ég samt að reikna eitt dæmi sjálf í stærðfræðitíma og ég fékk klapp frá bekkjarsystkinum mínum fyrir góðan árangur. Krakkarnir í bekknum eru ótrúlega fínir og það eru allir svo opnir. Spænskan gengur ekki eins vel og ég hefði viljað en ég get talað við krakkana með blöndu af ensku og spænsku.

Ég og nokkur af bekkjarsystkinum mínum
Það eru allir forvitnir um Ísland og ég er búin að fá margar spurningar. Til dæmis hvort það sé satt að við trúum á álfa og borðum hesta.
Ég fór með Ópal í skólann til að gefa krökkunum að smakka. Það fékk misjöfn viðbrögð en þeim fannst aðallega skrítið að þetta væri nammi og væri sykurlaust.


Stofan mín
Ég hef íslensk-spænsku orðabókina mína alltaf með mér í skólanum. Hún hefur alveg slegið í gegn. Núna kunna allir að segja „Þögn!“ og „Ég elska þig“ með misgóðum árangri. Eftirnafnið mitt er samt það sem öllum finnst skrítnast. Það kemst enginn nálægt því að bera það fram og þeim finnst það ótrúlega langt. Það eru allir lesnir upp með eftirnafni en hjá mér er Eva látið duga.
-Guðbjörg Eva


Sunday, August 26, 2012

Fyrstu dagarnir

Núna er ég loksins komin til fjölskyldunnar minnar þannig að ég get bloggað :) Við vorum fimm krakkar frá Íslandi sem fórum saman til Argentínu. Ferðin byrjaði með 6 klst. flugi til New York. Þar voru 26 gráður og sól þannig að við skelltum okkur í sólbað fyrir utan flugvöllinn! Það er nú ekki mikið sem er hægt að gera á flugvellinum í 10 tíma bið þegar maður er búinn að skoða allar búðirnar þannig að við fórum í pógó á ganginum :) Síðan tók við 11 tíma næturflug til Buenos Aires. Þegar við komum fórum við beint á komunámskeiðið. Það kom mér á óvart hvað það er rosalega kalt hérna! Ég er ekki alveg með réttu fötin. Strákurinn sem var hópstjórinn minn hafði verið skiptinemi á Íslandi. Auðvitað var ég uppáhaldið hans og alltaf þegar hann var með spurningar spurði hann mig. Það finnst öllum nafnið mitt mjög fyndið og allir hópstjórarnir voru greinilega búnir að skoða það og voru allir að reyna að segja það :D Þau voru mjög ánægð þegar ég sagði þeim að þau mættu kalla mig Evu. Allar bandarísku stelpurnar voru mjög hrifnar af lopapeysunni minni og voru í sjokki þegar ég sagði þeim að mamma hefði prjónað hana :) Í nótt var ég í 9 klst. rútu til að komast í borgina mína. Þetta var án efa flottasta rúta sem ég hef séð! Síðan kom fjölskyldan mín að sækja mig á rútustöðina. Það var svo gaman loksins að hitta þau. Þau eru ótrúlega fín og vilja gera allt fyrir mig. Mamman talar smá ensku svo ég get reynt að skilja þau. Húsið sem þau búa í er fínt. Ég skil ekki alveg en ég held að ég byrji í skólanum á þriðjudaginn.
-Guðbjörg

                                                              Nýlent í Buenos Aires
Hitarinn sem hélt okkur á lífi á komunámskeiðinu
Ég og fjölskyldan mín

Friday, August 3, 2012

Fyrsta bloggið

Ég heiti Guðbjörg Eva og er 17 ára nemandi í Menntaskólanum í Reykjavík. Ég verð skiptinemi í Argentínu næstu 11 mánuðina. Eftir hálfs árs umsóknarferli er loksins farið að styttast í brottförina sem verður þann 23.ágúst.

Ég er komin í samband við fjölskylduna mína og mér líst mjög vel á þau! Í fjölskyldunni eru hjón með tvö börn sem eru á svipuðum aldri og ég. Þau eiga líka tvo hunda :) Þau búa í Unquillo sem er 15 þúsund manna bær fyrir utan Córdoba sem er næst stærsta borg Argentínu.


Ég ætla að blogga og setja inn myndir á þessa síðu meðan ég er úti þannig að þið getið fylgst með ævintýrum mínum í Argentínu :D