Núna er ég búin með fyrstu vikuna mína í skólanum. Ég er
búin að vekja mikla athygli í skólanum fyrir að vera „ljóshærð“ og „hávaxin“. Skólinn
hér er mjög ólíkur því sem ég þekki á Íslandi. Til dæmis eru um það bil 40
nemendur í bekknum mínum. Það eru líka svona þrír
hundar sem búa í skólanum og þeir hafa meira að segja nöfn. Síðan finnst mér
alltaf jafn skrítið að sjá þegar kennarar koma inn í stofuna og nemendurnir
knúsa og kyssa þá.
 |
| Einn af hundunum í skólanum |
Ég skil nú voðalega lítið af því sem er verið að kenna í tímunum. Í
dag náði ég samt að reikna eitt dæmi sjálf í stærðfræðitíma og ég fékk klapp
frá bekkjarsystkinum mínum fyrir góðan árangur. Krakkarnir í bekknum eru
ótrúlega fínir og það eru allir svo opnir. Spænskan gengur ekki eins vel og ég
hefði viljað en ég get talað við krakkana með blöndu af ensku og spænsku.
 |
| Ég og nokkur af bekkjarsystkinum mínum |
Það eru allir forvitnir um Ísland og ég er búin að fá margar
spurningar. Til dæmis hvort það sé satt að við trúum á álfa og borðum hesta.
Ég
fór með Ópal í skólann til að gefa krökkunum að smakka. Það fékk misjöfn
viðbrögð en þeim fannst aðallega skrítið að þetta væri nammi og væri
sykurlaust.
 |
| Stofan mín |
Ég hef íslensk-spænsku orðabókina mína alltaf með mér í
skólanum. Hún hefur alveg slegið í gegn. Núna kunna allir að segja „Þögn!“
og „Ég elska þig“ með misgóðum árangri. Eftirnafnið mitt er samt það sem öllum
finnst skrítnast. Það kemst enginn nálægt því að bera það fram og þeim finnst það
ótrúlega langt. Það eru allir lesnir upp með eftirnafni en hjá mér er Eva látið
duga.
-Guðbjörg Eva
AA þetta er svo gaman hjá þér ! og þú hundamanneskja sjálf ekki slæmt að hafa nokkra á ganginum !
ReplyDeleteÞú þarft nú lika að blogga um gaurana í argentínu hehehehe :p
-kristín þ
Gaman að heyra lýsinguna hjá þér. Allt svo spennandi sem þú ert að upplifa núna. Pabbi er mest hissa á því að þeim finnist erfitt að segja Guðjónsddóttir :) Mamma og Pabbi
ReplyDeleteFrábært að heyra frá þér! Þú hefur greinilega náð að blogga þrátt fyrir rafmagnsleysið.
ReplyDeleteP.S. Þú verður að kenna þeim að segja rör, það sló algjörleg í gegn þegar ég var úti :)