Saturday, November 24, 2012

Þrír mánuðir

Ég er búin að vera hérna í Argentínu í þrjá mánuði og það hefur liði mjög hratt en samt finnst mér ég hafa verið ótrúlega lengi hérna. Ég tók fyrsta prófið mitt á spænsku í efnafræði og fékk 10! Efnafræðitímarnir í MR greinilega alveg að borga sig :) Ég get því miður ekki sagt að líffræði prófið hafi farið jafnvel en ég get ekki verið annað en sátt með að fá 5 svona miðað við skilninginn sem ég hafði á námsefninu :D Það eru samt tvö fög sem ég skil ekki ennþá hvaða fög eru og það er ekkert svo gaman að sitja tvöfalda tíma og skilja ekki neitt :/ Við erum alltaf í tvöföldum tímum og fáum tíu mínútna hlé á milli. Bekkurinn minn er í sautján fögum og er þess vegna  til dæmis bara með tvo tíma á viku í ensku.

Í síðustu viku varð rosalega heitt hérna og á fimmtudeginum fór hitinn upp í 38°C. Það er samt ennþá bara vor en þetta var víst óvenjulega mikill hiti. Í staðinn fyrir að vera í sundlaug þurfti ég að vera í tímum í skólanum og ég var alveg að stikna í skólabúningnum. Ég held að ég sé á góðri leið með að safna í bóndafar með þessum blessaða skólabúningi! Það hefur sem betur fer ekki verið jafnheitt síðan.


Ég fór með fjölskyldunni minni í ferð um síðustu helgi og við sáum meðal annars rosalega fallegt stöðuvatn. Córdoba er þekkt fyrir fjöllin sín og útsýnið var ótrúlega flott. Vegur sem við keyrðum eftir meðfram einu fjallinu var sá hlykkjóttasti sem ég hef séð! Við fórum líka í bæ sem heldur Októberfest og allur bærinn er í þýskum stíl.

Kiara, Abril og ég
Á sunnudaginn lagði ég mitt af mörkum fyrir samfélagið hérna með því að gerast sjálfboðaliði í könnun. Við þurftum að labba hús úr húsi til að spyrja hvort að það byggi einhver fatlaður þar til að finna hvað það eru margir fatlaðir í Villa Allende og við hvernig aðstæður þeir búa. Tveir elstu bekkirnir í skólanum mínu gátu tekið þátt og ég fór með vinkonu minni úr bekknum. Sem betur fer vorum við vorum heppnar með hverfið sem okkur var úthlutað. Mér gekk ágætlega með spurningarnar en það voru nokkur orð sem flæktust fyrir mér, enda eru orð eins og endurhæfing og sjúkratrygging ekki alveg orðaforðinn sem ég er búin að vera að nota. Við löbbuðum í fjóra tíma og það var sól næstum allan tímann. Það var víst aðeins of mikið fyrir mig því að einmitt þegar við vorum að klára hverfið okkar varð mér rosalega óglatt og fannst alveg eins og væri að líða yfir mig. Þannig að ég var sótt og missti af fría matnum sem var búið að lofa okkur fyrir að taka þátt :(

Síðan tók ég saman nokkra hluti sem ég hef tekið eftir að eru öðruvísi hérna en á Íslandi

·         Það hellingur af frídögum af allskonar ástæðum. Til dæmis hafa verið dagur kennarans, nemandans og vorsins síðan ég kom. Gaman að segja frá því að Argentína er það land sem hefur flesta frídaga í heiminum árið 2012. Svo spyr fólk mig af hverju ég hafi valið Argentínu :D

·         Langflest húsin eru girt af með girðingum og hliðum. Það eru samt fæstir með dyrabjöllur þannig að fólk klappar fyrir utan til að láta vita af sér.

·         Mjólkin og jógúrtið er selt í pokum en ekki fernum.

·         Það er eiginlega alltaf ævintýri að fara í strætó hérna. Strætóarnir eru rútubílar og þeir eru oftast troðfullir af fólki. Það er þess vegna oft erfitt að komast í gegnum þvöguna til þess að fara út. Bílstjórinn gefur líka til baka þegar maður borgar og mér finnst það alltaf jafn óþægilegt að sjá bílstjórann vera að einbeita sér meira að því að telja seðla en að keyra. Ég held að fólk sem fær innilokunarkennd og bílveiki ætti að forðast strætóana hérna!

·         Þegar rignir þá hellirignir og það koma þrumur og eldingar. Göturnar verða stundum alveg eins og ár.

·         Tunglið snýr öfugt þegar það er hálft!