Núna er ég loksins komin til fjölskyldunnar minnar þannig að ég get bloggað :) Við vorum fimm krakkar frá Íslandi sem fórum saman til Argentínu. Ferðin byrjaði með 6 klst. flugi til New York. Þar voru 26 gráður og sól þannig að við skelltum okkur í sólbað fyrir utan flugvöllinn! Það er nú ekki mikið sem er hægt að gera á flugvellinum í 10 tíma bið þegar maður er búinn að skoða allar búðirnar þannig að við fórum í pógó á ganginum :) Síðan tók við 11 tíma næturflug til Buenos Aires. Þegar við komum fórum við beint á komunámskeiðið. Það kom mér á óvart hvað það er rosalega kalt hérna! Ég er ekki alveg með réttu fötin. Strákurinn sem var hópstjórinn minn hafði verið skiptinemi á Íslandi. Auðvitað var ég uppáhaldið hans og alltaf þegar hann var með spurningar spurði hann mig. Það finnst öllum nafnið mitt mjög fyndið og allir hópstjórarnir voru greinilega búnir að skoða það og voru allir að reyna að segja það :D Þau voru mjög ánægð þegar ég sagði þeim að þau mættu kalla mig Evu. Allar bandarísku stelpurnar voru mjög hrifnar af lopapeysunni minni og voru í sjokki þegar ég sagði þeim að mamma hefði prjónað hana :) Í nótt var ég í 9 klst. rútu til að komast í borgina mína. Þetta var án efa flottasta rúta sem ég hef séð! Síðan kom fjölskyldan mín að sækja mig á rútustöðina. Það var svo gaman loksins að hitta þau. Þau eru ótrúlega fín og vilja gera allt fyrir mig. Mamman talar smá ensku svo ég get reynt að skilja þau. Húsið sem þau búa í er fínt. Ég skil ekki alveg en ég held að ég byrji í skólanum á þriðjudaginn.
-Guðbjörg
Nýlent í Buenos Aires
Hitarinn sem hélt okkur á lífi á komunámskeiðinu
Ég og fjölskyldan mín
Gott að heyra að þú ert komin á leiðarenda og ánægð með fjölskylduna!! :) Hlítur að vera dauðþreytt eftir allt þetta ferðalag. Hlakka til að fá annað blogg þegar þú ert búin að skoða í kringum þig. Farðu varlega litla frænka :* Kveðja frá Urrðakvísl
ReplyDeleteEkkert smá kuldalegar myndir, vonandi fer að hlýna bráðlega :) mamma var allavega að kíkja á veðurspána og skv. henni á að vera fínt veður hjá þér í næstu viku!
DeleteÞað verður spennandi að heyra hvernig þér líst á skólann :)