Núna er ég komin heim úr mjög skemmtilegri ferð til norður
Argentínu. Við vorum tæplega 50 skiptinemar alls staðar að úr heiminum. Það var
sérstaklega skemmtilegt að hitta hinu íslensku krakkana sem voru í ferðinni.
Það var mjög skrítið að tala íslensku í fyrsta skiptið í 9 mánuði (nema á Skype
auðvitað).
Við ferðuðumst tæpar 70 klukkustundir í rútunni á þessum níu dögum! Við höfðum
sem betur fer sæti sem var hægt að breyta í rúm og það fór nú bara nokkuð vel
um okkur.
 |
| Stuð í rútunni |
Fyrst fórum við til Salta sem er mjög
falleg borg. Við fórum í kláf upp á fjall þaðan sem var hægt að sjá yfir alla
borgina. Við fórum líka í river rafting en það var nú ekkert brjálað, var meira
til þess að njóta útsýnisins. Síðan skoðuðum við námu og sáum mennina vinna, ég
var vægast sagt fegin að komast þaðan út! Það var samt mjög flott að sjá alla
steinana.
 |
| Útsýnið úr kláfnum |
 |
| Á leiðinni inn í námuna |
Við fórum svo einn dag til Jujuy
og skoðuðum það sem er kallað fjöllin í sjö litunum. Fjöllin voru alveg
ótrúlega falleg og þar voru lítil þorp sem voru mjög afskekkt. Þetta var í
tæplega 3000 metra hæð yfir sjávarmáli og fólkið tyggur mikið af kókalaufum til
að þola hæðina.
 |
| Risa kaktusar! |
 |
| Kókalaufin |
Einn daginn fórum við á safarí
jeppum inn í frumskóginn. Þar var búið
að byggja palla uppi í stórum trjám og milli trjánna var búið að setja víra.
Það voru sett á okkur belti og hjálmar og síðan sveifluðum við okkur á milli
trjánna. Við fórum líka í klettasig og sem var 18 metra hátt. Eins og flestir
vita er ég frekar lofthrædd og ætlaði alls ekki að treysta mér í sigið. Síðan
ákvað ég að taka af skarið og ég hef sjaldan verið jafnhrædd og þegar ég seig
fram af brúninni! Á miðri leið niður var ég orðin góð og þá var þetta bara
gaman :)
 |
| Sönnun fyrir því að ég gerði þetta í alvörunni :) |
Við höfðum verið heppin með veðrið
alla ferðina, þangað til að við fórum í Iguazú þjóðgarðinn. Þá hellirigndi
allan daginn! Við létum það samt ekki eyðileggja fyrir okkur og þrumurnar gerðu
þetta bara ennþá meiri upplifun. Það keyptu sér nánast allir rándýrar regnslár
inni í þjóðgarðinum en við enduðum samt öll á því að verða gegnblaut. Fossarnir eru það magnaðasta sem ég hef séð enda
eitt af sjö undrum veraldarinnar. Það er ekki hægt að lýsa því hvað þeir eru
stórir og kraftmiklir. Við sigldum á bát á ánni fyrir neðan fossana og sigldum
meira að segja undir einn af litlu fossunum.
Við skoðuðum líka þreföldu
landamærin á milli Argentínu, Brasilíu og Paraguay.
Ég vona að þið hafið gaman af því
að lesa bloggið og sjá myndirnar :)
-Guðbjörg Eva
 |
| Allar í flottu regnslánum |
 |
| Í siglingunni |
 |
| Þreföldu landamærin |
 |
| Síðan varð ég bara að setja inn mynd af mjóasta hundi sem ég hef séð :( |