Við gerðum allskonar verkefni og áttum að nefna skrítnar, góðar og slæmar aðstæður sem við hefðum lent í. Dæmi um slæmar aðstæður var að einn strákurinn hafði lent í því að bekkjarbróðir hans sýndi honum ör eftir byssukúlu sem hann var með í kálfanum. Það voru annars flestir sáttir með reynsluna hingað til. Það var mjög skrítið að tala aftur ensku eftir sjö vikur af því að reyna að tala og skilja spænsku.
| Allir skiptinemarnir og sjálfboðaliðar |
| Skandinavísku stelpurnar |
Á sunnudaginn var mæðradagurinn hérna í Argentínu. Stórfjölskyldan
kom í hádegismat og það var auðvitað borðað ekta argentínskt asado (grillað
nautakjöt) og empanadas. Maturinn hérna er svo góður að ég er farin að hafa
áhyggjur af því hvernig ég verð í laginu þegar ég kem heim!
Helgina áður fór ég út að borða með krökkum úr bekknum
mínum. Kvöldið byrjaði ekki alveg nógu vel hjá mér því að ég braut stólinn sem
ég settist á! (Ég vona að hann hafi verið eitthvað tæpur áður en ég settist...)
Ég slapp samt alveg ómeidd sem betur fer :D
| Inni í dómkirkjunni |
| Fyrir utan Patio Olmos |
Á mánudaginn í síðustu viku var dagur tileinkaður listum í
skólanum og það var engin kennsla. Það var hægt að velja um fullt af hlutum eins
og að læra töfrabrögð, hiphop og spila á hljóðfæri. Ég valdi mér að læra
einhvern dans. Það kom kennari sem kenndi okkur og síðan sýndu allir hóparnir
atriði í lok dagsins.
| Tilbúnar fyrir dans atriðið |
Ég er mjög stolt af sjálfri mér að ég er búin að skrifa
dagbók um hvern einasta dag hérna og er komin með 28 blaðsíður í Word :)
-Guðbjörg Eva
Það verður sko gaman fyrir þig að eiga þessa dagbók eftir dvölina. Það er verst ef þú þyngist svo mikið að stólarnir haldi þér ekki lengur, ha ha. Alltaf jafn gaman að lesa frá þér.
ReplyDeleteBestu kveðjur, mamma
hahahah ég trúi ekki að stóllinn hafi brotnað!! :P Þú verður svo að læra argentínska matargerð og halda boð þegar þú kemur heim :)
ReplyDeleteÞórdís
Ég hefði verið til í að vera í nautakjötsveislunni :) Ég fer í að styrkja eldhússtólana áður en þú kemur heim.
ReplyDelete