Monday, September 24, 2012

Mánuður í Argentínu

Núna er ég búin að vera mánuð hérna í Argentínu og það er allt að byrja að venjast. Ég finn líka að ég er byrjuð að skilja aðeins meiri spænsku. Það er samt ennþá mjög erfitt að skilja þegar það eru margir að tala saman.

Á fimmtudaginn var sérstakur dagur í skólanum þannig að það var engin kennsla heldur bara skemmtidagskrá. Stofan hjá bekknum mínum var skreytt með Lísu í Undralandi þema. Bekkurinn minn var með dansatriði með dansi sem er vinsæll í Córdoba. Sem betur fer fékk ég góða kennslu hjá bekkjarfélögum mínum daginn áður :) Svo var ég spurð hvort ég vildi labba á einhverskonar tískusýningu fyrir framan allan skólann og ég ákvað að skella mér í það af því að þetta er nú í eina skiptið sem ég get tekið þátt í þessu.

Dansatriðið
Ég tók léttan snúning við endann á sýningarpallinum
Um kvöldið fór ég síðan út að dansa í fyrsta skiptið hérna í Argentínu. Það var alveg ótrúlega gaman og danskennslan frá því daginn áður kom sér mjög vel :D Svo gisti ég heima hjá vinkonu minni og við sváfum í svona tvo tíma áður en það var lagt af stað í gönguferð.Það var dagur vorsins þannig að það var frí í skólanum. Það fór stór hópur úr bekknum mínum og við gengum lengi til að komast inn í dal með fallegum fossi. Það var mjög heitt og ég var frekar þreytt en gangan var alveg þess virði.
Á leiðinni að fossinum
Allur hópurinn

Eitt skemmtilegt atvik sem ég lenti í: Um daginn var ég í verslunarmiðstöð og kannaðist eitthvað við lagið sem var verið að spila. Svo fattaði ég að þetta var lag með Sigurrós. Hversu mikil tilviljun að vera í búð í Argentínu og heyra íslenskt lag!
-Guðbjörg Eva

5 comments:

  1. Gaman að heyra að allt gangi svona vel hjá þér! Hljómar eins og það sé bara virkilega gaman, væri svo til í að skella mér út að dansa í argentínu :) kv. Íris Hrund

    ReplyDelete
  2. Þetta hafa verið skemmtilegir dagar :) Gott að heyra að allt gengur vel.

    ReplyDelete
  3. Flottur skólahópur. Gaman að sjá að þú tekur þátt í öllu fjörinu sem er í boði :) Mamma

    ReplyDelete
  4. Alltaf gaman að lesa bloggin þín frænka!! :) Gott að þú ert farin að skilja betur spænskuna, þetta kemur allt á endanum. Hafðu það gott :*

    ReplyDelete
  5. Er ekki kominn tími á nýtt blogg? ;)

    ReplyDelete