Tuesday, October 23, 2012

AFS hittingur og fleira skemmtilegt

 Síðasta laugardag var AFS með hitting fyrir alla skiptinemana í Córdoba. Við erum fjögur sem búum á svipuðu svæði og við tókum strætó saman inn í borgina. Það var ótrúlega gaman að hitta hina krakkana. Það eru um 20 skiptinemar hérna í Córdoba frá mörgum ólíkum löndum.
Við gerðum allskonar verkefni og áttum að nefna skrítnar, góðar og slæmar aðstæður sem við hefðum lent í. Dæmi um slæmar aðstæður var að einn strákurinn hafði lent í því að bekkjarbróðir hans sýndi honum ör eftir byssukúlu sem hann var með í kálfanum. Það voru annars flestir sáttir með reynsluna hingað til. Það var mjög skrítið að tala aftur ensku eftir sjö vikur af því að reyna að tala og skilja spænsku.



Allir skiptinemarnir og sjálfboðaliðar
Skandinavísku stelpurnar
Á sunnudaginn var mæðradagurinn hérna í Argentínu. Stórfjölskyldan kom í hádegismat og það var auðvitað borðað ekta argentínskt asado (grillað nautakjöt) og empanadas. Maturinn hérna er svo góður að ég er farin að hafa áhyggjur af því hvernig ég verð í laginu þegar ég kem heim!

Helgina áður fór ég út að borða með krökkum úr bekknum mínum. Kvöldið byrjaði ekki alveg nógu vel hjá mér því að ég braut stólinn sem ég settist á! (Ég vona að hann hafi verið eitthvað tæpur áður en ég settist...) Ég slapp samt alveg ómeidd sem betur fer :D

Inni í  dómkirkjunni
Fyrir utan Patio Olmos
Á mánudaginn í síðustu viku var dagur tileinkaður listum í skólanum og það var engin kennsla. Það var hægt að velja um fullt af hlutum eins og að læra töfrabrögð, hiphop og spila á hljóðfæri. Ég valdi mér að læra einhvern dans. Það kom kennari sem kenndi okkur og síðan sýndu allir hóparnir atriði í lok dagsins.

Tilbúnar fyrir dans atriðið
Ég er mjög stolt af sjálfri mér að ég er búin að skrifa dagbók um hvern einasta dag hérna og er komin með 28 blaðsíður í Word :)
-Guðbjörg Eva

Wednesday, October 10, 2012

Daglegt líf í Argentínu

Síðan ég bloggaði síðast er ég búin að gera margt! Helstu fréttir úr skólanum eru að ég er búin að fá heimanám. Til dæmis hélt ég kynningu í enskutíma um menntun á Íslandi. Það fór samt mestur tími í að kennarinn væri að þýða hana yfir á spænsku fyrir krakkana í bekknum. Ég hefði haldið að enskutímarnir væru auðveldastir en þeir fara nánast allir fram á spænsku þannig að ég skil ekkert meira í þeim. Svo gerði ég lítið verkefni um sögu Íslands á spænsku og í næstu viku á ég að skrifa um ævi Eiríks Rauða. Mér finnst alveg magnað að kennarinn viti hver hann var! Síðan er ég orðin eins og alvöru argentínskur nemandi og er komin með frímiða í strætóinn :)

Blak er alveg ótrúlega vinsælt hérna og krakkarnir eru mjög oft að spila. Ég er búin að prófa að spila en ég sýndi nú enga sérstaka byrjendahæfileika. Ég prófaði líka að spila Pictionary á spænsku. Með góðri hjálp og orðabók til að skilja orðin sem ég átti að teikna gekk það alveg ágætlega hjá mér :)


Á föstudaginn fór ég í afmæli hjá stelpu í bekknum mínum. Það var búin að vera rosalega mikil rigning og eldingar þannig að þegar ég kom til hennar var allt rafmagnslaust. Sem betur fer kom rafmagnið aftur eftir smá stund. Við fórum síðan út að dansa um kvöldið og það varð aftur rafmagnslaust. Þegar við löbbuðum heim hafði rignt svo mikið að göturnar voru eins og ár! Það var svo algjört bíómynda móment þegar það kom bíll og keyrði á fullri ferð fram hjá okkur og gusaði vatni yfir nokkrar af stelpunum.Um nóttina gistum við átta stelpur á þremur dýnum!


Síðan ég bloggaði síðast fyrir tveimur vikum eru búnir að vera tveir frídagar í skólanum og einn dagur sem var ekki með neinni kennslu heldur bara skemmtidagskrá (mér finnst að MR ætti að hafa svona daga!). Á þessum degi kom í ljós að bekkurinn minn vann verðlaun fyrir besta dansatriðið fyrir atriðið sem ég skrifaði um í síðasta bloggi :D


-Guðbjörg Eva

17.júní fáninn :)

Ég og nokkrar af bekkjarsystrum mínum

Ótrúlega góð kaka sem ein af stelpunum gerði