Wednesday, October 10, 2012

Daglegt líf í Argentínu

Síðan ég bloggaði síðast er ég búin að gera margt! Helstu fréttir úr skólanum eru að ég er búin að fá heimanám. Til dæmis hélt ég kynningu í enskutíma um menntun á Íslandi. Það fór samt mestur tími í að kennarinn væri að þýða hana yfir á spænsku fyrir krakkana í bekknum. Ég hefði haldið að enskutímarnir væru auðveldastir en þeir fara nánast allir fram á spænsku þannig að ég skil ekkert meira í þeim. Svo gerði ég lítið verkefni um sögu Íslands á spænsku og í næstu viku á ég að skrifa um ævi Eiríks Rauða. Mér finnst alveg magnað að kennarinn viti hver hann var! Síðan er ég orðin eins og alvöru argentínskur nemandi og er komin með frímiða í strætóinn :)

Blak er alveg ótrúlega vinsælt hérna og krakkarnir eru mjög oft að spila. Ég er búin að prófa að spila en ég sýndi nú enga sérstaka byrjendahæfileika. Ég prófaði líka að spila Pictionary á spænsku. Með góðri hjálp og orðabók til að skilja orðin sem ég átti að teikna gekk það alveg ágætlega hjá mér :)


Á föstudaginn fór ég í afmæli hjá stelpu í bekknum mínum. Það var búin að vera rosalega mikil rigning og eldingar þannig að þegar ég kom til hennar var allt rafmagnslaust. Sem betur fer kom rafmagnið aftur eftir smá stund. Við fórum síðan út að dansa um kvöldið og það varð aftur rafmagnslaust. Þegar við löbbuðum heim hafði rignt svo mikið að göturnar voru eins og ár! Það var svo algjört bíómynda móment þegar það kom bíll og keyrði á fullri ferð fram hjá okkur og gusaði vatni yfir nokkrar af stelpunum.Um nóttina gistum við átta stelpur á þremur dýnum!


Síðan ég bloggaði síðast fyrir tveimur vikum eru búnir að vera tveir frídagar í skólanum og einn dagur sem var ekki með neinni kennslu heldur bara skemmtidagskrá (mér finnst að MR ætti að hafa svona daga!). Á þessum degi kom í ljós að bekkurinn minn vann verðlaun fyrir besta dansatriðið fyrir atriðið sem ég skrifaði um í síðasta bloggi :D


-Guðbjörg Eva

17.júní fáninn :)

Ég og nokkrar af bekkjarsystrum mínum

Ótrúlega góð kaka sem ein af stelpunum gerði


6 comments:

  1. Ég er sammála með frídagana í skólunum, þetta ætti að vera svona hér. Vissi að fánarnir yrðu vinsælir, hefðirðu ekki bara þurft að hafa fleiri? Kveðja, mamma

    ReplyDelete
    Replies
    1. Haha ég hefði alveg þegið að hafa nokkra í viðbót!

      Delete
  2. Stuð að skrifa um Eirík rauð á spænsku,kennarinn veit örugglega meira um hann en þú :) hehe
    Rosa girnileg kaka, þú hefðir ekki þurft að vera að kreiva þessa sem við mamma gerðum fyrir nokkrum vikum ;)

    ReplyDelete
    Replies
    1. Það jafnast samt ekkert á við bláberja pie í Frostaskjólinu :)

      Delete
  3. Amma var hjá okkur í kvöld og hafði aldeilis gaman af að lesa bloggið þitt :)

    ReplyDelete
    Replies
    1. Það er gaman að heyra :)Þið megið endilega skila góðri kveðju frá mér til ömmu og í Brekkuhvamminn líka!

      Delete