Á fimmtudaginn var sérstakur dagur í skólanum þannig að það var engin kennsla heldur bara skemmtidagskrá. Stofan hjá bekknum mínum var skreytt með Lísu í Undralandi þema. Bekkurinn minn var með dansatriði með dansi sem er vinsæll í Córdoba. Sem betur fer fékk ég góða kennslu hjá bekkjarfélögum mínum daginn áður :) Svo var ég spurð hvort ég vildi labba á einhverskonar tískusýningu fyrir framan allan skólann og ég ákvað að skella mér í það af því að þetta er nú í eina skiptið sem ég get tekið þátt í þessu.
![]() |
| Dansatriðið |
![]() |
| Ég tók léttan snúning við endann á sýningarpallinum |
Um kvöldið fór ég síðan út að dansa í fyrsta skiptið hérna í
Argentínu. Það var alveg ótrúlega gaman og danskennslan frá því daginn áður kom
sér mjög vel :D Svo gisti ég heima hjá vinkonu minni og við sváfum í svona tvo
tíma áður en það var lagt af stað í gönguferð.Það var dagur vorsins þannig að
það var frí í skólanum. Það fór stór hópur úr bekknum mínum og við gengum lengi
til að komast inn í dal með fallegum fossi. Það var mjög heitt og ég var frekar
þreytt en gangan var alveg þess virði.
| Á leiðinni að fossinum |
| Allur hópurinn |
Eitt skemmtilegt atvik sem ég lenti í: Um daginn var ég í
verslunarmiðstöð og kannaðist eitthvað við lagið sem var verið að spila. Svo
fattaði ég að þetta var lag með Sigurrós. Hversu mikil tilviljun að vera í búð
í Argentínu og heyra íslenskt lag!
-Guðbjörg Eva


Gaman að heyra að allt gangi svona vel hjá þér! Hljómar eins og það sé bara virkilega gaman, væri svo til í að skella mér út að dansa í argentínu :) kv. Íris Hrund
ReplyDeleteÞetta hafa verið skemmtilegir dagar :) Gott að heyra að allt gengur vel.
ReplyDeleteFlottur skólahópur. Gaman að sjá að þú tekur þátt í öllu fjörinu sem er í boði :) Mamma
ReplyDeleteAlltaf gaman að lesa bloggin þín frænka!! :) Gott að þú ert farin að skilja betur spænskuna, þetta kemur allt á endanum. Hafðu það gott :*
ReplyDeleteEr ekki kominn tími á nýtt blogg? ;)
ReplyDelete