Friday, January 4, 2013

Jól og áramót

Þetta var án efa skrítnasti aðfangadagur sem ég hef upplifað! Það var voða lítið um jólaskreytingar á húsunum og það gladdi mig og dönsku vinkonu mína mikið þegar við sáum svakalegar jólaskreytingar, jólasveininn og jólaálfa í einni verslunarmiðstöðinni :D Ég byrjaði aðfangadaginn á því að tala við fjölskylduna mína á Skype og ég verð að viðurkenna að það var erfitt að sjá jólatréð heima í Frostaskjólinu. Ég gerði svo "íslenska" ostaköku til þess að hafa í eftirrétt um kvöldið. Þegar ég vaknaði úr siestunni minni skellti ég mér í bikini og fór í sundlaugina. Þetta var ekkert smá heitur dagur og hitinn fór upp í 40 gráður. Við borðuðum með frændfólki fjölskyldunnar og hérna er ekki byrjað að borða kvöldmat fyrr en eftir klukkan tíu. Á miðnætti var skálað og sprengdir flugeldar. Síðan var farið inn og pakkarnir frá jólasveininum opnaðir og ég fékk bol, ökklaband og eyrnalokka. Eftir það var eftirrétturinn borðaður og kakan mín sló alveg í gegn :D Það leið síðan yfir eina gamla konu út af hitanum en hún jafnaði sig sem betur fer. Það voru ennþá 28 gráður þegar við keyrðum heim klukkan hálf þrjú um nóttina!! 
Ég og argentínskur jóla-eftirréttur

Öll fjölskyldan
 Á jóladag safnaðist fjölskyldan saman heim hjá okkur og það var borðað asado. Abril fékk hjólabretti í jólagjöf og ég sýndi enga sérstaka byrjendahæfileika þegar ég fékk að prófa...
Það var sem betur fer ekki eins heitt á gamlárskvöld og á aðfangadag. Fjölskyldan safnaðist saman heima hjá okkur og við borðuðum heilgrillaða geit (ef ég skildi rétt...) Á miðnætti voru flugeldarnir sprengdir og svo skálað. Ostakakan mín hafði verið svo vinsæl að ég var beðin um að gera hana aftur fyrir gamlárskvöld :) Um klukkan tvö fór ég svo í áramótapartý heima hjá einni bekkjarsystur minni. Þar var öll stórfjölskyldan hennar og svo vorum við tíu úr bekknum. Það var dansað fram á nótt við alvöru argentínska partý tónlist :D


Áramóta geitin
Við að búa til alfajores
Um daginn hittumst við nokkur úr bekknum og ég lærði að gera alfajores sem ég held að sé alveg  sér-argentínskt. Ég fékk uppskriftina þannig að ég get vonandi gert þau þegar ég kem til Íslands!


Í gær hitti ég tvær af skiptinema vinkonum mínum frá Danmörku og Þýskalandi (vel mér greinilega vini frá framandi löndum!). Við fórum í bíó og það var ekki verið að sýna neina mynd á ensku þannig að við fórum á teiknimynd á spænsku. Ég var frekar stolt af sjálfri mér hvað ég skildi af talinu :)

Ég og Amalie frá Danmörku
Nýja gæludýrið mitt! Þið sjáið stærðina miðað við tappann
Það er búið að vera mjög skrítið að vera svona langt í burtu frá öllum á Íslandi yfir jólin en mér fannst ótrúlega gaman að fá að prófa eitthvað sem er svona allt öðruvísi öllu sem ég er vön.
Guðbjörg Eva

3 comments:

  1. HEILGRILLAÐA GEIT! og mér fannst öndin okkar stór...
    Fór á google og leist bara ágætlega á þetta alfajores, þú verður að kenna mér að gera svona :D
    Þórdís

    ReplyDelete
  2. Þetta hefur verið skemmtilegt. Gaman að kynnast nýjum hefðum um jól og áramót. En við höfum saknað þín óskup mikið um hátíðirnar.

    ReplyDelete
  3. Þetta er nú ævintýralegt og dálítið mikið öðruvísi en þú átt að venjast.
    Amma og afi höfðu gaman af að lesa þetta í afmæli ömmu í gær. Vinsamlegast ekki taka með þér gæludýr heim!
    Kveðja frá mömmu.

    ReplyDelete