![]() |
| Ég og argentínskur jóla-eftirréttur |
![]() |
| Öll fjölskyldan |
Það var sem betur fer ekki eins heitt á gamlárskvöld og á aðfangadag. Fjölskyldan safnaðist saman heima hjá okkur og við borðuðum heilgrillaða geit (ef ég skildi rétt...) Á miðnætti voru flugeldarnir sprengdir og svo skálað. Ostakakan mín hafði verið svo vinsæl að ég var beðin um að gera hana aftur fyrir gamlárskvöld :) Um klukkan tvö fór ég svo í áramótapartý heima hjá einni bekkjarsystur minni. Þar var öll stórfjölskyldan hennar og svo vorum við tíu úr bekknum. Það var dansað fram á nótt við alvöru argentínska partý tónlist :D
![]() |
| Áramóta geitin |
![]() |
| Við að búa til alfajores |
Í gær hitti ég tvær af skiptinema vinkonum mínum frá Danmörku og Þýskalandi (vel mér greinilega vini frá framandi löndum!). Við fórum í bíó og það var ekki verið að sýna neina mynd á ensku þannig að við fórum á teiknimynd á spænsku. Ég var frekar stolt af sjálfri mér hvað ég skildi af talinu :)
![]() |
| Ég og Amalie frá Danmörku |
![]() |
| Nýja gæludýrið mitt! Þið sjáið stærðina miðað við tappann |
Guðbjörg Eva






HEILGRILLAÐA GEIT! og mér fannst öndin okkar stór...
ReplyDeleteFór á google og leist bara ágætlega á þetta alfajores, þú verður að kenna mér að gera svona :D
Þórdís
Þetta hefur verið skemmtilegt. Gaman að kynnast nýjum hefðum um jól og áramót. En við höfum saknað þín óskup mikið um hátíðirnar.
ReplyDeleteÞetta er nú ævintýralegt og dálítið mikið öðruvísi en þú átt að venjast.
ReplyDeleteAmma og afi höfðu gaman af að lesa þetta í afmæli ömmu í gær. Vinsamlegast ekki taka með þér gæludýr heim!
Kveðja frá mömmu.