Ég og dönsk vinkona mín fórum út að borða um daginn og ég varð ekkert smá stolt þegar var byrjað að spila Little talks með Of mosters and men! Daginn eftir vorum við að labba um miðbæinn í Córdoba og þá sá hún búð sem seldi nælur með argentínska fánanum og svo með öðrum fána. Við fundum danska fánann um leið og ég hélt að það væri ekki séns að við myndum finna þann íslenska. Þannig að þegar hún sagði mér að hún sæi íslenska fánann hélt ég að hún væri að ruglast en hann var í alvörunni til!! Þegar við fórum inn í búðina og báðum um nælur með íslenska og danska fánanum hafi starfsfólkið auðvitað ekki hugmynd um hvaða fánar það væru. Ég efast ekki um að sá íslenski hafi staðið mörg ár í þessum búðarglugga!
![]() |
| Fallega nælan mín :) |
Ég reyndi að finna sjónvarpsstöð sem sýndi HM í hanbolta en það er minni en enginn áhugi fyrir handbolta hérna í Argentínu þannig að þeir sýndu bara leikina með argentínska liðinu. Þannig að ég fylgdist bara með íslensku leikjunum í beinni útsendingu í útvarpinu og á Vísi.is.
Um daginn fór fjölskyldan á hátíð sem var með tónleikum með
þjóðlagatónlist og einhverskonar argentínskum kúrekum. Finn enga íslenska
þýðingu á þessu en það eru ótamdir hestar og síðan reyna kúrekarnir að sitja á
hestinum í ákveðinn tíma án þess að vera kastað af baki. Þetta var haldið á
fótboltaleikvangi sem var alveg yfir fullur af fólki. Það var svaka stemning og
mér fannst mjög gaman að sjá þetta. Fann myndband sem sýnir pínu frá þessari hátíð,
þó að þið skiljið ekki talið eru myndirnar skemmtilegar :)
http://www.youtube.com/watch?v=3-XTP5INMBQ ![]() |
| Fullt af fólki! |
Við fórum líka á tvenna tónleika í Carlos Paz sem er mikill ferðamannabær. Bærinn var svo fullur af fólki að þetta var eins og að vera á Menningarnótt í miðbænum og svona er þetta víst allar helgar sumarsins! Í bæði skiptin voru líka flottar flugeldasýningar eftir tónleikana :D
![]() |
| Það rigndi "pínu" áður en tónleikarnir byrjuðu |
Ég var síðan ekkert smá glöð þegar ég fékk sendan
afmælispakka frá Íslandi og hann kom einmitt daginn fyrir afmælið. Það var
frekar skrítið að vita að klukkan 9 um kvöldið þann 17 átti ég afmæli á Íslandi. Ég átti alveg frábæran
afmælisdag og það komu nokkrir krakkar úr bekknum í heimsókn og síðan voru
systkini mín hérna búin að gera köku fyrir mig. Þetta var í fyrsta skiptið sem
ég á afmæli um sumar og í sól og það var skemmtileg tilbreyting. Ég fékk æðislegar
afmælisgjafir og afmæliskveðjur á Facebook á þremur tungumálum :D Það var meira
að segja bökuð rosa flott afmæliskaka í Frostaskjólinu þrátt fyrir að ég væri
hinum megin á hnettinum.
![]() |
| Afmælissending frá Íslandi |
Í gær fórum við fjölskyldan svo í bíltúr og keyrðum yfir
fjöll á torfæruvegum og útsýnið var mjög fallegt. Við stoppuðum hjá einni á sem
var eins og litla strönd á bakkanum og eyddum deginum í að vera í ánni í
sólbaði.
-Guðbjörg Eva
![]() |
| Útsýni |
![]() |
| Í ánni |











Það var skrítið að hafa ekkert afmælisbarn í afmælinu sem var haldið hérna á laugardaginn.
ReplyDeleteGaman að sjá hvað þú ert að gera margt skemmtilegt í fríinu.
Kveðja frá mömmu
Það hefur verið skemmtilegt að fara á sýninguna og tónleikana. Þú ert alltaf að upplifa eitthvað nýtt og skemmtilegt. Ekki skrítið að þú hafir verið hissa að sjá íslenska fánann í búðarglugganum :)
ReplyDelete