Monday, December 17, 2012

Sumarfrí

Núna er ég komin í þriggja mánaða sumarfrí og það er ekkert smá skrítið að það sé desember! Ég trúi því varla að það sé bara vika í jólin. Það er orðið mjög heitt hérna og það eru alveg ótrúlega margar tegundir af skordýrum! Eins og þeir sem þekkja mig vita að ég er ekkert of hrifin af pöddum en ég er orðin mjög góð í að veiða allskonar bjöllur og þannig. Ég ætla aldrei að kvarta aftur yfir skordýrum á Íslandi!

Ég tók hóp próf í bókmenntum  á spænsku og við máttum hafa bókin með í prófinu. Hópurinn minn var tekinn fyrir svindl og við vorum allar reknar út úr prófinu og fengum 1 í einkunn. Ég held að ég hefði ekki fengið mikið hærri einkunn ef ég hefði gert prófið sjálf :D Þannig að ég var komin með falleinkunn í faginu og ég frétti seinna að kennarinn hefði viljað að ég tæki endurtökupróf úr öllu árinu. Af augljósum ástæðum held ég að það hefði ekki haft mikið upp á sig....
Síðasta daginn í skólanum grillaði bekkurinn minn hamborgara í hádeginu og einmitt þá byrjaði að hellirigna og við urðum öll alveg rennandiblaut. Það komu þrumur og eldingar og ein eldingin kom ekkert smá nálægt skólanum!



Síðasti dagurinn í skólanum
Ég fór með host-mömmu minni í skólann þar sem hún vinnur og talaði við einn bekk sem hún kennir. Ég gaf þeim Ópal að smakka og þeim fannst það öllum alveg ógeðslegt en það voru nokkrar hetjur sem létu sig hafa það að borða tvö stykki. Það var til sjónvarp í skólanum þannig að ég gat sýnt þeim DVD-disk með myndum frá Íslandi og þau voru sérstaklega hrifin af myndunum frá Geysi og Jökulsárlóni.

Síðustu helgi var útskriftarveisla hjá host-bróður mínum. Þetta var ekkert smá flott veisla og allt öðruvísi en útskriftarveislur á Íslandi. Allur árgangurinn heldur veislu saman í sal og fyrst settust fjölskyldurnar við sín borð og síðan löbbuðu stúdentarnir inn í salinn í pörum og það var sýnt á stórum skjám. Ég held að ég hafi aldrei borðað eins mikið á einu kvöldi! Síðan var hægt að fara inn í annan sal þar sem var dansað fram eftir nóttu og við fórum heim klukkan fimm um nóttina.
Salurinn þar sem veislan var haldin

Ég fór með nokkrum skiptinemum í bíó og það kom svo í ljós að myndin var á þýsku með spænskum texta. Ég skildi ekkert of mikið í myndinni en þetta var ekkert smá fyndið. Við vorum sjö sem fórum og bara ein af okkur skildi þýsku. Ég er búin að sjá bæði Mamma Gógó og Kóngavegur í sjónvarpinu hérna. Hvern hefði grunað að það væri verið að sýna myndir á íslensku með spænskum texta í sjónvarpinu í Argentínu!


Útilega með AFS
Um daginn varð rafmagnslaust upp úr klukkan fjögur og rafmagnið kom ekki aftur fyrr en morguninn eftir. Það var ný reynsla að þurfa rafmagnslukt til að geta farið í sturtu :)

Það kom mér skemmtilega á óvart þegar pósturinn bankaði upp á og ég fékk fjögur jólakort frá Íslandi. Þau voru í alveg ótrúlega góðu ástandi og litu alls ekki út fyrir að hafa ferðast yfir hálfan hnöttinn :D
-Guðbjörg Eva


2 comments:

  1. Þau kunna ekki gott að meta að vilja ekki Ópal :) Flottar myndir og frásögn.

    ReplyDelete
  2. Eigum við þá að prófa hunangsræktun undir þakskegginu næsta sumar?
    Gaman að heyra að þú fékkst kortin!
    Bestu kveðjur frá mömmu.

    ReplyDelete