Í síðustu viku varð rosalega heitt hérna og á fimmtudeginum fór hitinn upp í 38°C. Það er samt ennþá bara vor en þetta var víst óvenjulega mikill hiti. Í staðinn fyrir að vera í sundlaug þurfti ég að vera í tímum í skólanum og ég var alveg að stikna í skólabúningnum. Ég held að ég sé á góðri leið með að safna í bóndafar með þessum blessaða skólabúningi! Það hefur sem betur fer ekki verið jafnheitt síðan.
Ég fór með fjölskyldunni minni í ferð um síðustu helgi og við sáum meðal annars rosalega fallegt stöðuvatn. Córdoba er þekkt fyrir fjöllin sín og útsýnið var ótrúlega flott. Vegur sem við keyrðum eftir meðfram einu fjallinu var sá hlykkjóttasti sem ég hef séð! Við fórum líka í bæ sem heldur Októberfest og allur bærinn er í þýskum stíl.
| Kiara, Abril og ég |
Á sunnudaginn lagði ég mitt af mörkum fyrir samfélagið hérna
með því að gerast sjálfboðaliði í könnun. Við þurftum að labba hús úr húsi til
að spyrja hvort að það byggi einhver fatlaður þar til að finna hvað það eru
margir fatlaðir í Villa Allende og við hvernig aðstæður þeir búa. Tveir elstu
bekkirnir í skólanum mínu gátu tekið þátt og ég fór með vinkonu minni úr
bekknum. Sem betur fer vorum við vorum heppnar með hverfið sem okkur var úthlutað.
Mér gekk ágætlega með spurningarnar en það voru nokkur orð sem flæktust fyrir
mér, enda eru orð eins og endurhæfing og sjúkratrygging ekki alveg orðaforðinn
sem ég er búin að vera að nota. Við löbbuðum í fjóra tíma og það var sól næstum
allan tímann. Það var víst aðeins of mikið fyrir mig því að einmitt þegar við
vorum að klára hverfið okkar varð mér rosalega óglatt og fannst alveg eins og
væri að líða yfir mig. Þannig að ég var sótt og missti af fría matnum sem var
búið að lofa okkur fyrir að taka þátt :(
Síðan tók ég saman nokkra hluti sem ég hef tekið eftir að
eru öðruvísi hérna en á Íslandi
·
Það hellingur af frídögum af allskonar ástæðum.
Til dæmis hafa verið dagur kennarans, nemandans og vorsins síðan ég kom. Gaman
að segja frá því að Argentína er það land sem hefur flesta frídaga í heiminum
árið 2012. Svo spyr fólk mig af hverju ég hafi valið Argentínu :D
·
Langflest húsin eru girt af með girðingum og
hliðum. Það eru samt fæstir með dyrabjöllur þannig að fólk klappar fyrir utan
til að láta vita af sér.
·
Mjólkin og jógúrtið er selt í pokum en ekki
fernum.
·
Það er eiginlega alltaf ævintýri að fara í
strætó hérna. Strætóarnir eru rútubílar og þeir eru oftast troðfullir af fólki.
Það er þess vegna oft erfitt að komast í gegnum þvöguna til þess að fara út.
Bílstjórinn gefur líka til baka þegar maður borgar og mér finnst það alltaf jafn
óþægilegt að sjá bílstjórann vera að einbeita sér meira að því að telja seðla
en að keyra. Ég held að fólk sem fær innilokunarkennd og bílveiki ætti að
forðast strætóana hérna!
·
Þegar rignir þá hellirignir og það koma þrumur
og eldingar. Göturnar verða stundum alveg eins og ár.
·
Tunglið snýr öfugt þegar það er hálft!
Alltaf jafn gaman að lesa bloggin þín :) og rosa flottar myndir!
ReplyDeleteÞetta er engin smá lífsreynsla: ) Nú er bara að finna flotta derhúfu og vatnsflösku í hitanum.
ReplyDeleteAlltaf gaman að lesa bloggin þín. Gerist örugglega eitthvað skemmtilegt hjá þér á hverjum degi :)
ReplyDelete