Friday, May 3, 2013

8 mánuðir

Það er farið að styttast verulega í heimferðina, ég er meira að segja komin með flugáætlunina og lendi á Íslandi 18. júlí. En ég ætla að nýta tímann sem ég á eftir hérna og er búin að skrá mig í ferð til norður Argentínu og að skoða Iguazu fossana. Ferðin er í lok maí og ég fer með næstum öllum hinum skiptinemunum í Córdoba.

Fyrir nokkrum helgum var AFS með útilegu fyrir alla skiptinemana og það var mjög gaman að hitta alla krakkana. Við erum 10 skiptinemar sem komum í ágúst og förum saman heim í júlí og erum öll frá Evrópu.

                       
Í síðustu viku tók bekkurinn minn þátt í sjónvarpsþætti sem er keppni á milli bekkja með allskonar þrautum og spurningum. Við fengum frí í skólanum um daginn og eyddum deginum í miðborginni. Á meðan við löbbuðum um var byrjað að kalla „EVA!“ og ég leit við og hélt að þetta væri einhver sem ég þekkti. En við föttuðum síðan að ég var í skólabúningnum sem er með nafninu mínu á bakinu. Þetta var alveg hópur af strákum og síðan þegar við komum að stúdíóinu þar sem þátturinn var gerður kom vinur minn til mín og sagði mér að vinir mínir væru að spyrja hvar ég væri. Þá var þetta bekkurinn sem átti að keppa á móti okkur í þættinum. Það var meira að segja einn af þeim sem hét Adam (Adam og Eva fyrir þá sem föttuðu þetta ekki) og síðan vildu þeir fá mynd af sér með mér fyrir Facebook! Krökkunum í bekknum mínum fannst þetta nú ekki leiðinlegt.
Okkur gekk hins vegar ekkert of vel í þættinum og töpuðum. En þetta var samt mjög skemmtilegur dagur sem ég á örugglega ekki eftir að gleyma.


Hluti af krökkunum sem tók þátt í þættinum
Allir bekkirnir með sinn fána og skólabúning
Fyrsti maí var frídagur hérna og þá safnaðist fjölskyldan saman til að borða hefðbundinn argentínskan rétt sem ég hafði aldrei smakkað áður. Þetta var voða svipað og íslenska baunasúpan nema það var sett sterk sósa út á.
 
Skólinn gengur bara vel hjá mér, á þriðjudaginn þurfti ég að gera munnlegt próf í lögfræði um réttindi og skyldur starfsmanna á Íslandi. Ég nýtti mér það auðvitað að eiga systur sem er að læra lögfræði :D Þýddi textann á spænsku og mér gekk síðan bara vel að segja kennararnum frá. Það sem kom öllum mest á óvart voru lágmarkslaunin og uppsagnarfresturinn á Íslandi.

Á hverjum degi er fáninn settur upp á morgnanna og dreginn niður á kvöldin. Einn daginn fékk ég að taka fánann niður og rétta skólastjóranum hann. Allur bekkurinn kom og stóð með mér hjá fánastönginni og það var tekin mynd af okkur.

-Eva

 
Áður en ég tók fánann niður
 
Skólinn minn verður 50 ára í ár


2 comments:

  1. Alltaf jafn gaman að lesa bloggið þitt. Það er aldeilis að þú vekur athygli í borginni.
    Lögfræðikennarinn hefur orðið hissa á kunnáttu þinni um vinnuréttinn. Njóttu vel tímans sem þú átt eftir í Argentínu.
    Kveðja frá mömmu

    ReplyDelete
  2. Ég er nú ekki hissa þó að íslensk dama veki athygli hjá Argentínskum stúdentum :) Nú fer maður að telja niður til 18. júlí.
    Kveðja Pabbi

    ReplyDelete